Illdragsill

   21 vinjetta         (6.978 orð)

Tréið Ill-dragsíll.  Er ekkert skylt  tréinuYggdragsil

   Ill er vondur í merkingunni illur dragsill er samsetning úr enska orðinu drag sem getur þýtt að drattast, og sill

   er dregið úr franska orðinu sillage sem getur merkt fótspor. Samanber ,, Marcher dans le sillage”  

Sem sagt, vont er að drattast úr sporunum.

 

 

Vinjetta-1

Tréð Ill-dragsíll gengur upp í gegnum viðskiptaheiminn allan og aðra heima. Angar hans ná til allra skúmaskota viðskiptaheimsins og annarra heima. Tré þetta hefur þrjár rætur. Ein þeirra er í mannheimum, ein í hugarheimi og ein í viðskiptaheimi. Við þá rót sem er í viðskiptaheimi er brunnur nokkur sem heitir Heimskubrunnur, þrjár skessur búa þar í grend og hafa það að starfa að ausa vatni úr Heimskubrunni á rót trésins Ill-dragsíl. Skessur þessar heita Foræði, Nújá og Skuldaskil. Foræði er elst og hefur á forræði sínu fortíðina, næst henni kemur Nújá sem hefur forræði yfir nútíðinni og þá kemur sú sem heitir Skuldaskil, hún á að sjá um framtíðina. Við eina rótina er er púki sem Níðbítur heitir, hann er stöðugt að naga rótina sem er í mannheimi, þetta er rót vandans. Á efstu grein trésins situr fugl nokkur sem Davíð heitir, hann er fráeygður mjög og sér allt sem fram fer umkringis trénu. Þar sem sumar greinar trésins eru þétt vaxnar á Davíð erfitt að sjá hvað fer fram undir laufum greinanna. Því hefur hann tamið sérstakan njósnara sem heitir Hólmsteinn. Hólmsteinn þessi er í líki íkorna. Hann fer um tréð frá Níðbít til Davíðs og ber Davíð slúður um þá sem leynast í þykku laufi trésins. Skessurnar  Foræði, Nújá og Skuldaskil hafa í tómstundum sínum spunnið allmikinn vef sem þær hafa með göldrum tengt við sérhverja peningastofnum í viðskiptaheiminum. Þannig er einn þráður í þessum vef tengdur einni peningastofnum. Þræðirnir í vefnum eru kallaðir lánalínur. Nú þegar þráður slitnar fer viðkomandi peningastofnum á hausinn, svo einfalt er það nú.

Dag einn sitja skessurnar þrjár við Heimskubrunninn og drekka vodka af stút, þá segir Foræði hey stelpur eigum við ekki að gera smá grín, og í þeim orðum sveiflar hún vodkaflöskunni en gætir ekki að því hve nærri hún er vefnum. Það er ekki að sökum að spyrja tveir þræðir slitna og einn er nánast í sundur. Ææ segir Foræði, þar fóru tvær lánalínur, hvert skyldu þær liggja ? Nújá rekur þræðina til banka á Bísalandi sem er grein í trénu, hún segir djö…  þeir liggja báðir á sama stað og þessi sem er hálf slitinn líka. Þegar Nújá ætlar að laga þennan þriðja þráð vill ekki betur til en hún togar of fast í hann en meiningin var að hnýta hann saman aftur, úps, ææ, þar fór hann líka. Nújá kallar á Skuldskil og biður hana að taka við, síðan fær hún sér einn í viðbót úr vodkaflöskunni.

Tréð Ill-dragsíll

Vinjetta-2

Skuldaskil nennir ekkert að spekúlera í þessum bönkum í Bísalandi, hún veit ekki einu sinni hvar í fjármálaheiminum þessi Bísagrein er, aldrei heyrt á það minnst. Nújá hefur aftur á móti áhyggjur af þessu, þar sem skuladlínurnar slitnuðu óvart og í fylliríi þeirra skessanna. Nújá  segir við hinar, verðum við ekki að bæta þessum bönkum skaðann ? Vertu ekki að hafa áhyggjur af þessu við spinnum bara nýja þræði sagði Foræði ekkert mál. Hvernig væri að leggja þráðinn milli banka og láta lánalínuna liggja frá aðalbankanum til þessa Bísalands ? Svo er bara að skrúfa frá og láta flæða á milli. Hvað með fuglinn spyr Nújá ? Við bara leggjum slúður milli greina íkorninn sér um að fræða fuglinn. Nújá síður saman slúður fyrir fuglinn og leggur milli greina. íkorninn Hólmsteinn er einmitt á leið frá  fuglinum til Níðbíts með skilaboð frá fuglinum. Hann nemur slúðrið en heldur samt áfram leið sinni til Níðbíts. Hann segir við Níðbít, fuglinn heldur að greinin sem hann situr á sé að fúna og óttast að hún detti af trénu. Níðbítur horfir á Hólmstein íkorna og segir. Hafa nú helvítis kerlingarnar dottið í það einu sinni enn og gleymt að vökva?

Tréð Ill-dragsíll

Vinjetta-3

Nú þýtur íkorninn Hólmsteinn upp eftir tréinu allt upp að greininni sem fuglinn Davíð situr á. Hvað er að frétta spyr fuglinn ? Kerlingarnar duttu í það og gleymdu að vökva. Í mannheimum er allt að verða snarvitlaust út af þessum línum sem  Foræði sleit á fylliríinu, sérstaklega eru Bísarnir fúlir út í kerlingarnar. Ég heyrði líka þær raddir úr laufinu að Bísarnir vilji meina að þú hefðir átt að gera eitthvað til að koma í veg fyrir þetta óhapp. Fuglinn Davíð snýr uppá sig og teygir gogginn upp í loftið, ég, átti ég að gera eitthvað ? Svo er sagt segir Hólmsteinn íkorni. Eins og ég hafi ekki verið búinn að vara kerlingarnar við, marg búinn að segja þeim að hætta þessari drykkju, bauðst meira segja til að panta tíma á Vogi fyrir þær. Þeim er ekki viðbjargandi þessum dræsum. Með það sama er Hólmsteinn íkorni þotinn niður tréð til Níðbíts að segja honum að fuglinn Davíð sé saklaus, og hann hafi varað við drykkju kerlinganna. Rótin er hálf þurr segir Níðbítur, nennirðu að sækja mér nokkra dropa í Heimskubrunninn ég er svo fjári þyrstur. Ekkert mál segir Hólmsteinn og er þotinn með það sama til að sækja hressingu í Heimskubrunninn.

 

Tréið Ill-dragsíll

Vinjetta-4

Nú kemur íkorninn Hólmsteinn að Heimskubrunninum. Þá eru þær þar fyrir allar skessurnar þrjár, Foræði, Nújá og Skuldaskil. Það leynir sér ekki að þær eru drullu þunnar allar saman. Íkorninn spyr hvort hann megi ekki fá smá dreitil úr Heimskubrunni, því Níðbítur sé svo þyrstur, rótin sé þurr og enga vökva að fá við rótina. Skuldaskil réttir Hólmsteini flösku og segir, „honum veitir ekkert af þessu.“ „Hvað er þetta spyr Hólmsteinn ?“ „ Þetta er skal ég segja þér vinurinn minn, vatn lífsins hvorki meira né minna.“ „ Á, er það“ segir Hólmsteinn, og smakkar á vatninu. „Déskoti er sterkt bragð af þessu vatni“ segir Hólmsteinn og fær sér annan sopa. „Er nú alveg víst að þetta sé vatn ?“

„Já já“ segir Nújá „þetta er aquavite sem er vatn lífsins ef marka má orðabók bibba. „Fáðu aðra flösku með þér“ segir Skuldaskil „en drekktu ekki of mikið af þessu á leiðinni. Við biðjum fyrir bestu kveðjur til Níðbíts.“ Með það er Hólmsteinn þotinn til fundar við Níðbít.

Nú situr Níðbítur við rótina og undrast hve Hólmsteinn er lengi í sendiförinni. „Ætli aulinn hafi villst“  tautar Níðbítur. Það er af Hólmsteini að segja að honum fannst jörðin ganga í bylgjum undir sínum fjórum fótum, og undraðist mjög.

Þá kom að því að Hólmsteinn sá allt að þrjár greinar í stað einnar sem á vegi hans voru. Hólmsteinn vissi ekkert hvar hann var og enn síður í hverja átt bæli Níðbíts var. Þar sem hann ráfar um í þéttu laufi milli greina í trénu rekst hann á gamlan mann. Gamli maðurinn horfir á Hólmstein og spyr, „ert þú ekki hérinn sem flytur fréttir upp og niður ?“ „ Nehei ég er íkorni“ segir Hólmsteinn. „Voðalegt er að sjá á þér útganginn“ segir gamli maðurinn, „engu líkara en þú sért fullur.“

 

Tréð Ill-dragsíll

Vinjetta-5

„Ég fullur“ segir Hólmsteinn „af hverju ætti ég að vera fullur ? ég hef ekkert drukkið annað en vatn lífsins og ekki verður maður fullur af því.“ Gamli maðurinn biður Hólmstein að leyfa sér að skoða ílátið með þessu vatni. Hólmsteinn íkorni réttir honum flöskuna sem Níðbítur á að fá, hann var búinn að klára úr hinni flöskunni. Gamli maðurinn les á miðann sem er utaná flöskunni og segir. „40 % ja hérna, drífðu þig með þetta til Níðbíts en ekki taka tappann úr fyrr en þú kemur til hans.“

„ Í hvaða átt á ég að fara ?“ spyr íkorninn. „Þú fylgir bara  slóðinni eftir Hummeranna hún liggur að rót vandans þar sem Níðbítur er.“ Níðbítur bíður eftir sopanum. Skrítið að þessi Hummeraslóð skuli liggja til rótar vandans tautar Hólmsteinn íkorni. Með það slagar hann eftir slóð Hummeranna í átt að rót vandans. Níðbítur sér hvar Hólmsteinn íkorni kemur, „hvað er að sjá þig Hólmsteinn“ segir Níðbítur en við sjálfan sig, „svei mér þá ef hann er ekki eitthvað lasinn auminginn, rétt dregst áfram hvað er að sjá.

„Þarna ertu þá“ segir Níðbítur. Hólmsteinn horfir í áttina þaðan sem hljóðið kemur, hann segir „ert þetta þú Níðbítur?“  „Já komdu nær vinur, ertu með vatnið sem ég bað þig um að færa mér?“

„Já hér er flaska með vatni lífsins sértappað á fyrir þig af kerlingunum þrem við Heimskubrunn. Þær sögðu að þér veitti ekki af að fá hressingu, þær lofuðu líka að vökva rótina betur, en vegna smá óhapps hefði þeim orðið á, en annars báðu þær fyrir kveðjur til þín.“ Íkorninn Hólmsteinn sofnar nú, um varir hans leikur bros.

Tréð Ill-dragsíll

Vinjetta-6

Nú er frá því að segja að við rót trésins í Hugarheimi er brunnur sem heitir Viskubrunnur. Þegar hér er komið sögu er hann þurrausinn allri visku. Ástæðan er sú að rætur vandans  hafa sogið alla visku úr honum. Skammt frá Viskubrunninum á heima þurs sem heitir Árvakur.

Árvakur þessi hefur þann starfa að miðla upplýsingum til Mannheima um hvaðeina sem ber fyrir í öllum þremur heimunum. Í árdaga var hann vanur að fá sér sopa úr Viskubrunni, en eftir að brunnurinn þornaði hefur engin viska komist í nánd við Árvak. Því er það að flest ef ekki allt sem frá honum kemur er bölvað bull, lygi og vitleysa, því hann veit ekkert nema slúðrið sem íkorninn Hólmsteinn færir honum. Við viskubrunninn endar slóð Hummeranna, og er sá staður kallaður Bömmer.

Tréð Ill-dragsíll

Vinjetta-7

Eins og sagt hefur verið áður situr efst í trénu fuglinn Davíð. Hann er Fálkaafbrigði, blár í gegn. Þar fyrir neðan eru svo fuglar af sama stofni nema að í bland við þá eru fuglar sem eru með litaafbrigði á vængjum. Sumir eru með græna slikju, aðrir fölgræna og svo eru þarna afbrygði með bleikar stélfjaðrir.  Mestur fugla af þessum bláfuglum á eftir Davíð er afkomandi fuglsins Haarde, sem flæktist hingað að austan fyrir áratugum síðan. Þetta afbrygði er blátt í gegn eins og fuglinn Davíð. Því er hann valinn til forystu. Aðrir bláfuglar lúta honum og hlíða í blindni sama hvað á gengur. Bláfuglum fer heldur fækkandi, en Davíð segir að stofninn eigi eftir að ná sér aftur, þegar skuldaregninu slotar. Gunnfáni Bláfugla er hvítir stafir á bláum grunni, þar er stafurinn D mest áberandi. Þar fyrir neðan í trénu er annar flokkur fugla sem er grænn á litinn, ekki er vitað um hvort einhver af þeim fuglum séu grænir í gegn, þó telja fræðingar að það hafi verið til eintök af þessum fuglum sem hafi verið græn í gegn. Þessi fuglategund er í útrýmingarhættu og hefur verið rætt um að fanga nokkur eintök til að hafa til sýnis ef hann hverfur alveg úr greinum trésins. Gunnfáni þessara fugla er hvítir stafir á grænum feldi, áberandi er stafurinn B, en fræðimönnum ber ekki saman um hvers vegna þessi stafur hefur verið valinn. Þar fyrir neðan í trénu er svo fuglar sem eru marglitir, rauðlitir ýmist með bláum, gulum, rauðum eða grænum fjöðrum, ýmist í stéli eða vængjum, sumir þó bæði í stéli og vængjum. Þessari tegund hefur fjölgað all nokkuð á móti fækkun í þeim bláu og grænu. Það er álit fuglafræðinga að fjölgun þessara fugla megi rekja til þess að þeir nærist einkum á vandræðum og óánægju en ofvöxtur er í því um þessar mundir. Gunnfáni þessara fugla er rauðir stafir á hvítum feldi.Svo koma þar fyrir neðan í trénu rauðir fuglar. Þeim hefur farið fjölgandi í því árferði sem er nú um stundir, enda nærast þeir eins og marglitu fuglarnir einkum á vandræðum og óánægju. Þessi tegund er frekar einslit, það er að segja ekki mörg litaafbrigði þó má finna meðal þeirra einstaklinga með bleikar, grænar og jafnvel með bláa slikju á stélfjöðrunum. Gunnfáni þessara fugla er grænir stafir og rauð tákn á hvítum grunni.

Þar fyrir neðan kemur svo tegund sem er allavega á litinn. Þó ber mest á bláalitnum hjá þessari tegund. Hún kom í tréð eftir óveður sem geisaði fyrir nokkrum árum og kom róti á tegundirnar. Það er mat fræðinga að um einhverskonar óánægju hafi verið að ræða í öllum hinum fuglaflokkunum sem varð til þess að þessi tegund klauf sig frá hinum. Gunnfáni þeirra er hvítt F á bláum feldi. Það er álit fræðimanna að F-ið standi fyrir furðufuglar.

Þar fyrir neðan eru svo fuglar sem ómögulegt er að flokka með nokkurri vissu. Þeir eru allavega á litinn og sumir skipta litum eftir árferði, eru ýmist bláir, grænir, bleikir , rauðir eða gulir. Þessir fuglar hafa engan gunnfána sérstakan en tegund ef tegund er hefur fengið nafnið Fífl hjá fræðimönnum. Stofn þessi er breytilegur hvað fjölda varðar, sem má skýra með því að hluti hans flakkar milli greina og hefur aðsetur tímabundið þar.

 

Tréð Ill-dragsíll

Vinjetta-8

Hólmsteinn vaknar nú af heldur óværum svefni, drullutimbraður. Hann horfir í kringum sig og segir „hvar í ósköpunum er ég eiginlega ? Af hverju er mér svona illt í hausnum ?“  Þursinn Árvakur lítur til hans og segir „þú ert bara timbraður og ekki nema von. Þú komst hér í gær blindfullur slagandi eins og mæðuveik rolla eftir Hummerslóðinni.“

„ Æi, ekki tala svona hátt“ vælir Hólmsteinn. Árvakur segir, „þú ættir að drífa þig upp til Dabba hann hefur verið að garga í allan morgunn, það er áræðanlega eitthvað mikið á seyði hjá fuglunum.“  Hólmsteinn drattast af stað upp tréð til fundar við forustufuglinn Davíð. „Hvar hefurðu verið?“  spyr Dabbi.  „Ég sótti vatn fyrir Níðbít í Heimskubrunninn, hann var svo fjári þyrstur og Viskubrunnurinn galtómur. Svo heimsótti ég Árvak og hallaði mér hjá honum, var eitthvað svo fjandi þreyttur.“ „Hvernig stendur á því að brunnurinn er tómur?“ spyr Dabbi. „ Æi rætur vandans eru búnar með alla visku úr brunninum“  segir Hólmsteinn.

„Hverskonar vatn var þetta sem þú fékkst handa Níðbít? Drakkstu eitthvað af því sjálfur?.“ „Bara smá“ segir Hólmsteinn, „mér fannst ansi sterkt bragð af því.“

„ Sögðu gömlu skessurnar eitthvað um hvaða vatn þetta var?“ „ Já já Skuldaskil sagði að þetta væri vatn lífsins, svo sagði Nújá eitthvað á útlensku, ég  held aquavite eða eitthvað svoleiðis.“ „ Á var það já“ segir Dabbi „þú ert nú meiri hálfvitinn Hólmi minn veistu ekki að þetta vatn er ekkert annað en brennivín.“ „Hvað er brennivín“ spyr Hólmsteinn? „Sleppum þessu bara“ segir Dabbi, „farðu heldur niður í Mannheima og hleraðu hvað sé um að vera þar.“  Hólmsteinn hefur nú jafnað sig at timburmönnunum og þýtur af stað til að njósna um lífið í Mannheimum fyrir Davíð almáttuga.

Tréð Ill-dragsíll

Vinjetta-9

Íkorninn Hólmsteinn læðist nú um Mannheima og sperrir eyrun. Hann heyrir sögur og slúður um allt mögulegt. Hver sé með hverjum, hver hafi gert hitt og með hverjum og hvar, og hver sagði hvað um nágranna sinn. Allt ómerkilegt rugl, ekkert bitastætt. Um það bil sem hann ætlar að yfirgefa Mannheima og flytja Dabba engar fréttir heyrir hann á tal tveggja fugla annar var blár úr flokki D-fugla og hinn grænn úr flokki B-fugla.

Sá blái segir „hvernig líst þér á að græða ?“  Sá græni segir „tja, því ekki það, kostar það ekki helling ?“

„ Neinei“ segir sá blái bara smá sveiflu. Sko, segir hann svo, „við bara setjum í gang það sem heitir ferill.“ „ Nújá“ hvað er það?“ segir sá græni, „Við bara einkavæðum korn-og fræsöluna.“ „ Er það hægt“ spyr sá græni ? „Ekkert mál“ segir sá blái, „við skiptum þessu bara jafnt milli okkar bláu og grænu vina.“ „ Hvað með hina?“ segir sá græni. „ Iss þeir eru bjánar og við bara skiljum þá eftir í Umhverfislandi, þar geta þeir týnt fjallagrös og lopadræsur úr gaddavírnum, og prjónað úr þeim vandræði, sem verða verðlaus þegar við höfum selt okkar mönnum hlut þeirra í korn-og fræ.“ „ Déskoti líst mér vel á þetta“ segir sá græni, „en ég bara skil ekkert í þessu, kannski af því ég er svo grænn.“ Sá blái segir, „þá er bara að finna einhverja leppa til að gera tilboð í þessar korn-og fræsölur, við getum haft þær þrjár. Tvær verða hreinar, önnur blá og hin græn, svo höfum við eina svona blandaði bláa og græna með smá bleiku og gulu í.“ Nú er bara  að drífa í þessu“ segir sá blái.“ Við tilkynnum þetta svo við þóknanlegan hentugleika.“

„ Er ekki betra að ræða þetta heima hjá okkur spyr sá græni ?.“  „Ekkert svona kjaftæði við bara ákveðum þetta og drífum svo í því, við sýnum sko hverjir ráða.“ Hólmsteinn íkorni hefur heyrt nóg hann treystir sér ekki til að muna fleiri sögur og þýtur því af stað upp til Dabba almáttuga til að færa honum fréttirnar.

Tréð Ill-dragsill

Vinjetta-10

Hólmsteinn íkorni er nú hjá Dabba almáttuga að segja honum frá þessu ráðabruggi D- og B-fuglanna. Dabbi hlustar á allt slúðrið af þolinmæði, segir svo. „Farðu fyrir mig niður til Árvakurs og flyttu honum eftirfarandi boðskap, og biddu hann að setja á þrykk og láta útvarpa og sjónvarpa þessum  boðskap. Við ráðum yfir þessu öllu,  Fréttamogganum, ríkiskringlukastinu, 3650 og INN við ráðum yfir þessu öllu saman“ segir Dabbi almáttugi, „sama hvað hver segir.” „Hver er svo boðskapurinn?“ spyr Hólmsteinn íkorni, „já boðskapurinn er að ég æðsti-D ásamt Dóra æðsta-B höfum ákveðið að einkavinavæða  alla korn-og fræsölur trésins. Þetta er gert til framdráttar nýrri hagfræðikenningu sem barst hingað með vestanvindinum hér um daginn. Þetta á að stuðla að velgengni okkar manna í korn-og fræ sem verður að korn-og fræ ehf. Eftir breytinguna á eignarhaldi þessara fyrirtækja.“ „ Heldurðu að Árvakur sé til í að setja þetta á hámælisstandinn?“  „Sko, ef hann er með eitthvað múður þá skalt þú segja við hann og þú mátt bera mig fyrir því. Þú þarna Árvakur ef þú hlýðir ekki ertu rekinn og ég skal sjá til þess að þú fáir ekki svo mikið sem dómaraembætti í framtíðinni“ segir Dabbi. „Vaó  þú ert svei mér harður.“ Með það þýtur Hólmsteinn íkorni áleiðis til Árvaks. Þegar Hólmsteinn hefur flutt Árvakri boðskapinn frá Dabba almáttugum segir Árvakur, „hvar á ég nú að fá blek til að skrifa allt þetta?, ég er alveg lens með blek og prentsvertu.“

Íkorninn hallar undir flatt, segir svo „skellirðu þessu bara ekki á netið ? svona til að byrja með.“

„Hvaða net“ spyr Árvakur ? „ Nú netið sem kerlingarnar eru búnar að spinna út um allar trissur.“ „ Þú segir nokkuð“ segir Árvakur, „en þolir þetta net svona nokkuð ? Þetta eru engar smá fréttir og ég er viss um að þær eiga eftir að skapa miklu fleiri fréttir þegar furðufuglarnir og þeir rauðu og bleiku fatta hvað er verið að gera.“ „ Iss þeir fatta ekkert“ segir Hólmsteinn „þeir eru niðri í fjöru að tína söl.“

 

Tréð Ill-dragsíll

Vinjetta-11

Árvakur semur nú fréttina um einkavinavæðingu Korns-og fræ sem eftir söluna heitir Korn-og fræ-bank hf., Korn-og fræ-grúpp hf. og Korn-og frælands hf. Fréttin fjallar um þá snilldarhugmynd bláa fálkans að losa allt sem er sameiginlegt í teinu undan oki íbúanna. Það sé svo miklu einfaldara að láta fáa blá-og græn fugla stjórna korn- og fræ úthlutunum. Enda segir í fræðunum að þetta sé gert í útlöndum og Hannes segi það, svo það er örugglega rétt. Nú gengur allt í haginn hjá íbúum trésins. Allir fá það korn og þau fræ sem þeir óska sér. Jafnvel þeir rauðu og bleiku fá það sem þeir vilja af korni og fræi, svo maður tali nú ekki um þá bláu og grænu. Jafnvel furðu fuglarnir fá það sem þeir biðja um af korni og fræjum.Það verður að umbuna stjórnendum þessara fyrirtækja fyrir alla stjórnunar snilldina við að  útluta korni og fræjum. Á einhvern undraverðan hátt hefur þeim tekist að safna saman svo miklu korni og svo miklum fræjum að til vandræða  horfir. Þrátt fyrir tíföld laun miðað við aðra fugla trésins, héldu birgðirnar áfram að hlaðast upp. Fljótlega fór að bera á umframbyrgðum af korni og fræi. Við verðum að koma þessu fyrir í einhverjum öðrum trjám, það eru allar geymslur orðnar fullar hjá okkur. Það eru allir saddir og sælir í trénu, nema auðvitað fuglarnir sem alltaf að leita að einhverju öðru til að borða, það er sama hvað þeim er boðið, þeir eru alltaf á móti öllu.

Tréð Ill-dragsíll

Vinjetta-12

Nú er komið svo málum að forða verður korni og fræjum til annarra trjáa, því það liggur undir skemmdum. Þeir útvöldu fundu það ráð að bjóða korn og fræ til láns í öðrum trjám, aðallega fyrir austan. Þetta kölluðu þeir að fara í austurveg, en aðrir að fara í útrás. Nú komu fuglarnir upp korn-og frægeymslum víðsvegar í trjáum fyrir austan. En þar er greitt fyrir þessa vöru í öðrum gjaldmiðli sem heitir evrur en í trénu Ill-dragsíl í gjaldmiðli sem heitir aumur. Aumur er minnsta eining þessa gjaldmiðils, en aldrei notuð fyrir það hversu aum hún er, heldur er lægsta nothæfa eining kíló-aumur. Þegar hér er komið sögu þá kostar ein evra 60 kílóaumur.

Í trjánum fyrir vestan er notast við dalla sem gjaldmiðil. Á þessum tíma kostaði einn dallur um 40 kíló-aumur. Allt leikur í lyndi um sinn korn-og frægeymslurnar fyllast hver af annarri. Einhverjum snillingnum í korn-og fræ bönkunum hafði dottið það snjallræði í hug að hafa svo háa vexti á aumunum að þeir sem í austratrjánum sáu sér hag í að kaupa aumur fyrir evrur og græða á vaxtamun. Þeir þarna fyrir austan voru með nánast enga vexti á evrunum svo þetta var rífandi bissness. Í korn-og frægeymslunum hlóðust upp evrur og voru fuglarnir hvattir til að slá út á greinar og lauf og kaupa sér fyrir evrurnar allskyns lúxus. Þá rann æði á marga og um tíma var annar hver bláfugl  og margir grænir búnir að kaupa sér hjálpartæki til að spara flugfjaðrirnar. Mest áberandi var hjálpartæki sem heitir Hummer og kemst nánast allt það sem fuglinn fljúgandi kemst eða hér um bil. Eftir þessu hjálpartæki heitir slóðin frá Heimskubrunni til Viskubrunns Hummerslóðin. Þar sem hún endar er eins og fyrr er sagt mikið plan sem heitir Bömmer. Lengra verður ekki komist í þá áttina.

Tréið Ill-dragsíll

Vinjetta-13

Velsæld ríkir og bláum og grænum fuglum fjölgar, en rauðum og bleikum fer heldur fækkandi. Þeir marglitu setjast helst á greinar þeirra bláu og grænu frekar en þeirra rauðu og bleiku. Furðufuglunum kemur ekki saman um hvar þeir eigi að vera í trénu svo þeir bara væflast um upp og niður. Svona gengur þetta í langan tíma mörg ár meira að segja. En greinin sem Dabbi yfir-bláfugl situr á heldur áfram að visna, sama er að segja um margar aðrar greinar bæði bláar og grænar. Svo skeði það einn daginn að greinin sem Dabbi sat á datt af trénu. Yfir-fálkinn Dabbi varð því að forða sér frá falli með því að taka flugið. En hann hafði ekki þurft að beita vængjunum í langan langan tíma svo það reyndist honum erfitt að fljúga. Hann vissi heldur ekkert hvert hann ætti að fara því hann var ekki í neinum tengslum við aðra fugla trésins, nema örfáa bláfugla sem voru eins og hann bláir í gegn.

Svo fer að hann sest á gilda grein ofarlega í trénu, því hann vill jú sitja þar sem hann hefur góða yfirsýn, aðeins er ein grein ofar sem er óvisnuð, en þar situr Haarde afbrigðið. Þetta afbrigði er harðgert eins og nafnið bendir til og því varð Dabbi að setjast á grein neðar hvort sem honum líkaði betur en verr. Þar sem hefur verið lengi mikill og náinn vinskapur með þessum bláfuglum kom þeim saman um að Haarde fuglinn sæi um daglega stjórn á fuglum trésins en Dabbi væri einskonar yfirstjórnandi og liti til með korn-og fræ bönkunum. Í orði kveðnu undir stjórn Haarde fuglsins en í raun ekki. Eina hlutverk Dabba var því að ákveða hverjir vextir ættu að vera á kílóaumunni og hvaða gengi ætti að vera á evrunni og dallinum. Þar sem hann Dabbi vissi ekkert um evrur, dalla og aumur fékk hann sér spjald eins og er notað í pílukasti. Þetta spjald hefur margar tölur og reiti. Til að ákveða vexti kíló-aumunnar  og gengi evrunnar kastaði hann pílum á spjaldið einu sinni í mánuði. Hann skrifaði svo hjá sér töluna á reitnum sem pílan lenti í og það var talan sem hann ákvað að væru vextir, eða gengi evrunnar og dallsins.

Stundum lenti pílan í hurðinni fyrir ofan eða neðan spjaldið, þá bara sleppti hann úr og sagðist ekki breyta neinum vöxtum og engu gengi. Þegar bláfuglar sem héldu að þeir væru vinir hans, nöldruðu út í þetta fyrirkomulag , sagði Dabbi bara „þið hafið ekkert vit á þessu og eigið bara að halda kjafti.“ „Ég er lögfróður en þið ekki. Þótt þið hafið lært prósentureikning í Súpergaggó er ekki þar með sagt að þið hafið eitthvart vit á þessum málum, og ef þið ætlið að vera með einhvern kjafthátt eða leiðindi við mig þá bara “súa” ég ykkur eins fuglarnir fyrir vestan gera þegar einhver móðgar þá. Svo læt ég vini mína í Hæstugreinum dæma ykkur burt úr trénu.“

 

 

 

 

 

Tréð Ill-dragsíll

Vinjetta-14

Það þorir enginn að mótmæla Dabba hann er svo ákveðinn og klár. En teikn eru um válega tíma framundan. Þær skessurnar við Heimskubrunn eru farnar að hafa verulegar áhyggjur. Foræði segist óttast mest að missa forræði yfir atburðum þessara útrásafugla og þeir séu komnir langt út fyrir þau mörk sem þeir haf lifað innan og haga sér alveg eins og þeir séu einir í trjánum, þeir eyða og spenna kaupa meira að segja heilu fuglafélögin í öðrum trjám hvað þá meira. Þeir eru líka sífellt að bjóða í veislur og lúxus einhverjum auðfuglum sem þeir halda að séu vinir þeirra. Meira að segja fá þeir söngfugla úr öðrum trjám til að hafa ofanaf fyrir gestum sínum, allt flýtur í vatni lífsins og öðrum eðaldrykkjum.

Nújá getur ekki orða bundist og tekur undir orð Foræðis, „ég hef miklar áhyggjur út af þessu öllu, ég verð að segja það. Þessi ósköp verða skráð á minn reikning þar sem þau eru að gerast núna. Ég veit bara ekki hvað ég get gert í málinu.“  Fuglarnir fara bara í önnur té ef ég hasta á þá, ekki er það nú gæfulegt. Þeir hóta meira að segja að fara með allt kornið og fræin með sér ef ég hætti ekki þessu nöldri.“ „ Ekki verður þetta skárra hjá mér“ segir Skuldaskil. „Ég sé minn tíma koma með mestu hörmungum sem yfir þetta tré hefur gengið alveg frá því sáð var til þess. Þá verða skuldaskil sem aldrei fyrr og ég veit bara ekki hvernig ég get afgreitt þetta allt saman. Verð sennilega að fá aðstoð frá einhverjum vönum svona ástandi.“

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Tréið Ill-dragsíll

Vinjetta-15

Hólmsteinn íkorni þeytist milli greina og nemur slúður til að flytja Dabba sem nú situr á eftirlitsgreininni hátt uppí trénu. Hólmsteinn segir „fuglarnir í trénu eru orðnir órólegir, sérstaklega þessir hag-fuglar og sumir viðskipta-fuglarnir líka. Þeir eru eitthvað að segja að við séum komnir með of miklar birgðir  í önnur tré. Þeir segja að útrásarfuglarnir séu farnir að slá út á birgðirnar sem þeir hafa safnað í austurtrjánum. Dabbi snýr uppá sig „þú segir það Hólmsteinn minn, það er bara ekkert að marka þessa hag-fugla það veit ég sko, þetta eru bjánafuglar sem þykjast vita eitthvað af því þeir lærðu prósentureikning í Súpergaggó eða í vestur trjánum eða eitthvað.“ „ En sumir eru bláir“ segir íkorninn. „Eru þeir bláir í gegn eins og Haarde stofninn spyr Dabbi?“

„Það eru nú ekki margir svoleiðis“ segir Hólmsteinn „þeir eru flestir í að græða ýmist hér í trénu eða í austurtrjám þetta eru aðallega útrásarfuglar, en það eru nokkrir grænir innanum“ bætir svo íkorninn við. „Hvað segja þeir bleiku og rauðu?“ „Þeir eru flestir snarvitlausir sérstaklega þeir rauðu, þeir bleiku virðast ýmist vera með eða á móti, snúast bara og vinglast fram og aftur.“ Akkúrat tautar Dabbi „þá er víst óþarfi að hafa áhyggjur. Má bjóða þér í glas Hólmsteinn minn ?“ „ Já takk vatn,  þú veist þetta með bragðinu.“

„Skál mikið er þetta hressandi eftir öll hlaupin um tréð. Nú þurfum við bara að matbúa einhverskonar frétt til að láta Árvak setja á pappír fyrir fugla trésins.“

„Hólmsteinn minn þú finnur út úr því er það ekki ?“ „ Jú ætli það ekki „segir íkorninn. „En Hólmsteinn, fréttin á að vera um efnahagsundur og vel heppnaða korn-og fræstjórnum mína, og að það sé engin hætta á ferðum. Bullið í hagfuglunum sé bara öfund út í stefnu mína í korn-og fræmálum, allt sem ég spáði hefur ræst fullkomlega. Við erum engum öðrum fuglum lík fyrir snilli í korn-og fræstjórnun, og þetta er allt mér að þakka, gleymdu ekki að láta Árvak geta þess í fréttinni.“

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Tréið Ill-dragsíll

Vinjetta-16

Íkorninn Hólmsteinn brunar niður tréð til fundar við Árvak. Á leiðinni heyrir hann á mál nokkurra smáfugla. Rauður fugl er á tali við bleikan. „Þetta gengur aldrei til lengdar“ segir sá rauði, „hvað gengur ekki?“  segir sá bleiki. „Nú þessi útrás.“ „ hvað með hana ? „Já sjáðu til þeir eru farnir að geyma korn og fræ fyrir fugla í öðrum trjám, og jafnframt farnir að slá út á það eða bara kaupa allskyns drasl til dæmis  fuglafélög, Hummera, einkaþotur og allt mögulegt. Hvar eiga þeir svo að fá korn og fræ til að skila til eigendanna ef þeir vilja fá sitt til baka ?“ ég bara spyr. „Þú ert nú svo svartsýnn“ segir sá bleiki, „auðvitað reddast þetta, það hefur alltaf gert það.“ Hólmsteinn heldur áfram ferð sinni til Árvakurs. Neðarlega í trénu heyrir hann að það sé einhver furðufugl að tala um efnahagmál trésins. „Þetta var ég búinn að marg segja ykkur sagði furðufuglinn, þetta gengur aldrei til lengdar sama hvað Dabbi og spekingarnir í eftirlitinu segja, það er engu líkara en þeir séu vangefnir, þeir fatta bara ekkert hvernig korn-og fræ viðskipti virka. Þetta tré á áræðanlega eftir að visna og deyja og það alveg á næstunni. Kornið er að mygla og fræin spíra ef ekkert verður að gert þá verður þetta ónýtt og einskis virði. Þá vill enginn sjá þetta, en hvar er svo kornið og fræin sem útrásarfuglarnir fóru með í önnur tré ? Fáum við eitthvað af því til baka þegar allt er orðið ónýtt hér í trénu, ég bara spyr?“

Hólmsteinn heldur áfram ferð sinni til Árvakurs til að koma fréttinni frá Dabba í eftirlitinu til skila. „Ertu kominn Hómsteinn“ minn segir Árvakur, „ég trúi að þú flytjir einhverjar fréttir ofan úr teinu er það ekki ?“  „Jú“  segir Hólmsteinn, „Dabbi biður fyrir kveðjur til þín og þinna skrifþræla. Dabbi biður um notaleg skrif um snilli sína við stjórnun á korn-og fræ. Þú átt sérstaklega að taka það fram að allt sé í þessu fína varðandi gengi korns og fræs og allt sem sagt er annað sé bull og vitleysa, svo máttu bæta því við að þeir sem eru að nöldra séu bara að öfundast út í velgengni annarra.“

„Ég heyrði einmitt í þessum nöldrurum á leiðinni hingað. Þetta voru bara einhverjir furðufuglar og ekkert mark takandi á þeim. Þú skalt ekkert vera að minnast á það vinur. Láttu bara eins og þú hafir ekkert heyrt um það.“

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Tréið Ill-dragsíll

Vinjetta-17

Tíminn líður fuglarnir eru meira og minna á fylleríi, kaupandi flatskjái, jeppa, tappatogara og hrærivélar svo eitthvað sé nefnt og maður tali nú ekki um ferðalög í suðlæg tré, þar sem menn lifa í lúxus og vellystingum. Allt leikur við fuglana stóra og smáa. Bláfuglarnir Dabbi og Haardi horfa saman yfir greinar trésins. „Heyrðu Dabbi“ segir Haardi „eru þessar greinar að upplitast,“ Haardi bendir á greinar þar sem bláfuglarnir sitja á. Dabbi gjóar fráum fálkaaugunum í áttina sem Haardi benti og segir, „ég sé það nú ekki, þú þarft að láta athuga sjónina í þér Haardi minn.“  Áfram líður tíminn, sama hegðun í bláfuglum og flestum öðrum í trénu, stanslaus gleði , nóg af korni og fræjum. Enn eru nokkrir fuglar neðarlega í trénu að nöldra um að allt sé að fara fjandans til. Þeir halda því fram að greinarnar séu að visna unir fótum þeirra. Sumir hafa orð á því að best sé að forða sér í suðlægari tré eða til frændtrjáa okkar í austri. Þvílík ósvífni segja forystufuglar útrásafuglanna sem fá tonn af korni og fræjum á hverjum mánuði, fyrir að standa vörð um viðskiptafrelsið, meðan venjulegir smáfuglar fá 10 grömm fyrir mánaðar strit. Svona er þetta nú.

Árvakur horfir áhyggjufullum augum á rótina. Viskubrunnurinn laungu þurr og rótin að visna.  Á sama tíma situr Níðbítur við sína rót, ég hef áhyggjur af þessu tautar Níðbítur. Rótin bara að skrælna og enginn vökvar, hvað er eiginlega að kerlingunum?. Eru þær dottnar í það enn og aftur?

Skessurnar þjár þær Foræði, Nújá og Skuldaskil sitja við Viskubrunninn og dæla úr honum til að vökva með rætur trésins, en það kemur engin viska lengur úr brunninum, heldur eitthvað sem þær skilja ekki. „Hvaða bull er þetta eiginlega“ segir Foræði ? „Þetta er bara eitthvert bláleitt glundur“ segir Nújá, „það drepur bara ræturnar að vökva með því.“ Skuldaskil horfir niður í brunninn og segir „ég sé enga visku í brunninum. Hvað gerum við núna?. Ég sé ekki betur en ég fái þetta allt saman í hausinn“.

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Tréið Ill-dragsíll

Vinjetta-18

Enn heldur veislan áfram. En það eru blikur á lofti, greinar visna og sumar detta af. Helst eru það greinar efst og neðst í trénu. Þær bláu eru fljótar að visna, það er kominn maðkur í tréð. „Hvurslags er þetta“ segir Haardi, „greinarnar bara hrynja undan fótum minna fugla og annarra. Ég verð að kalla til trjáfræðinga frá öðrum trjám.“ Haardi kallar á Dabba eftirlitsmann og spyr hann um þessa visnu greinar sem eru að falla af trénu. „Ha, hvaða greinar?“ spyr Dabbi.  „Nú sérð þú ekki allar greinarnar sem fallnar eru? “ „Nei er þetta ekki bara einhver áróður úr rauðfuglum?.“  Enn detta greinar af trénu, „við verðum að fá sérfræðinga úr öðrum trjám til að segja okkur hvað sé að“ segir Haardi við Dabba.

„Iss þetta er ekkert“ segir Dabbi, „en við getum svo sem spurt einhverja ef þér líður betur með það.“ Þannig var að Haardi bláfugl var farinn að leggja eyrun við nöldri þeirra bleiku sem hann að vísu fyrirleit en varð að notast við fylgi þeirra til að halda stjórn trésins. Hann athugar nú hvort skólabróðir hans úr flugskólanum sé við símann. Sá býr í austurtré langt langt í burtu. „Hallu“ segir Haardi „er du hjemme?“.“ Jaja,“ segir skólabróðirinn, „er ikke alt i orden herr Haardi?“ „ Nej det er noget galt med mitt tre, grenerne fallar af, har du nogen forkarning pa dette?“  „Nej men de har hent oss for mange år siden,“ „ Jaso hvad var det galt med treerne hos dig?“ „ Det var noget med en orm som spiste allt mugligt. Man mener at de var en orm som man kaller blograedgi, det er meget farlig orm. Hvad kan jeg göre?“. „ Du ma söge hjelp hos Giganten det er eneste muligheden. Hvis Giganten vil hjelpe kan vi ogso hjelpe lit.“ „Takk, tusind takk kere ven.“ Haardi leggur á. „Alltaf traustur vinur“ segir Haardi, „best að segja Dabba frá þessu.“

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Tréð Ill-dragsíll

Vinjetta-19

„Andkoti og djöfull“ er það fyrsta sem Dabbi segir þegar Haardi hefur sagt honum frá maðknum sem sestur er í réið og er á góðri leið með að sjúga úr því allan lífskraftinn.

„Ég var búinn að segja þetta“ segir Dabbi við Haarda, „ég varaði ykkur við þessum maðki fyrir laungu, þið bara hlustuðuð ekki og nú er allt að fara í þennan ormskjaft eða hvað þetta nú er.“  Haardi reynir að rifja þessi varnaðarorð sem Dabbi segist hafa viðhaft. En það er sama hvað hann reynir honum er lífsins ómögulegt að muna eftir þeim. „Hvað er til ráða“ spyr Dabbi?. „ Við verðum að biðja Giganten um hjálp“ segir Haardi. “Djö,“ segir Dabbi „veistu ekki að þessi Gigant gleypir allt sem hann kemur nærri. Það hafa mörg tré orðið fyrir þeirri ógæfu að biðja Giganten um hjálp, og nærri öll hafa verið gleypt af honum.“ „ En ef hann getur eytt orminum þá er það skömminni skárra en láta tréð visna og missa allar greinarnar.“  „Þessi Gígant er svo frekur að engu lagi er líkt,“ segir Dabbi, „ég yrði ekki hissa þótt hann ræki mig af greininni minni, undir því yfirskini að hann þyrfti að komast að til að eyða ormum af henni, og hvert á ég svo sem að fara?“ „ Þú ferð bara í frí á meðan, gætir fengið að gista í Valhöll eða í einhverju  skálkaskjólinu, nóg er af þeim.“ „ Á ég sjálfur Dabbi að húka í einhverju skálkaskjóli eins og ótíndur förufugl meðan þessi Gígant leggur undir sig tréð?“ „Tja við eigum ekki marga möguleika, frændtré okkar í austri segjast eiga eitur gegn þessum ormi en þeir eiga bara ekki nóg. Þeir segjast geta bætt við ef Giganten setur kraft á sínar dælur og úðar tréð duglega.“ „Hvað eigum við að segja hinum fuglunum í trénu?“  „Látum Hólmstein íkorna þvæla einhverju í Árvak, sama hvað er bara einhverft bull, allt er nógu gott fyrir þessi fífl.“

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Tréð Ill-dragsíll

Vinjetta-20

Greinar visna og falla af. Laufin fölna. Korn-og fræbankarnir fara allir sem einn á hausinn og Haardi segir fuglunum að nú séu framundan erfiðir tímar. Dabbi segir „ég sagði ykkur þetta.“  Grænu fuglarnir segja við sögðum ykkur þetta. Rauðu fuglarnir segja við vöruðum ykkur við, þetta er það sem þið vilduð þegar þið einkavinavædduð korn-og fræ. Bleiku fuglarnir segja þetta kom okkur verulega á óvart, okkur var sagt að það væri allt í þessu fína hjá korn-og fræ bönkunum.  Útrásarfuglarnir flýja í önnur tré með sitt persónulega korn og fræ. Þeir hafa komið því undan til trjáa sem eru einhverstaðar sem enginn veit hvar. Haardi segir, „við verðum að rannsaka þetta allt saman heilstætt. Við verðum að skipa valinkunna fugla til að rannsaka þessi mál öll. Við höfum þegar skipt um stjórnir í korn-og fræ-bönkunum. Við höfum hent út óráðsíufuglunum sem kollkeyrðu samfélagið okkar í trénu. Við höfum skipað í stjórnir nýju bankanna fólk úr næst efsta lagi gömlu bankanna. Stálheiðarlegt fólk sem veit ekki hvort það á 190 milljónir eða ekki. Á þessu má sjá að við höfum tekið myndarlega á þessu máli öllu. Svo ætlum við að ræða við Gíganten um að fá nokkur korn og eitthvað af fræjum svo við getum keypt svo sem einn eða tvo flatskjái.“  Hólmsteinn fer um allt tréð og segir fuglunum að Haardi sé að vinna í lausnum á korn-og fræ málum þeirra. Þeir verði að standa saman það sé nauðsynlegt að þeir blaki vængjunum á vinsamlegan hátt hver framan í annan og syngi sín fegurst lög.

Nújá fórnar höndum og segir við Skuldaskil, „ég held bara að þú takir við hér, er ekki eitthvað eftir af vatni lífsins?“ Skessurnar detta í það og Níðbítur tautar, ekki deigur dropi í rótinni.

Gíganten gjóar augunum á tréð og tautar, á ég, á ég ekki, á ég, á ég ekki ?.

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Tréð Ill-dragsíll

Vinjetta-21

Fuglinn Haarde sem hefur verið uppá náð bleiku fuglanna við völd í trénu ákveður að kalla til Giganten sem einhverra hluta vegna vill láta kalla sig AGS.

Sérfræðingar Giganten koma til að skoða greinar og lauf trésins. Þeir eftir nákvæma skoðun kveða uppúr með, að hér hafi verið slík óstjórn að til róttækra og sársaukafullra aðgerða verði að grípa þegar í stað. Leggja þeir til að almennum fuglum verði bannað að fara í önnur té með korn og fræ nema eitthvað smá, gegn framvísun tilskilinna flugleyfa. Auk þess er öllum fuglum skylt að koma með allt korn og öll fræ sem þeir eiga í öðrum trjám heim í tréð. Undanþegnir þessum reglum eru vissar tegundir útrásafugla, sem hafa leyfi til þess að halda áfram sinni fyrri hegðun, bara ef þeir væru ekki að segja frá. Þegar AGS spyr Dabba um það hvernig í ósköpunum þetta ástand gat komið upp, segir Dabbi „það er ekki í mínum verkahring að setja hömlur á þessa fugla sem settu tréð í þessa stöðu“. „Ég var margbúinn að vara við þessu“. Haarde kallar nú til Hólmstein íkorna og spyr hann „hvernig er þetta með allt frelsið sem þú krafðist fyrir fuglana?, af hverju varaðir þú ekki Dabba við? Af hverju vissu skessurnar ekki af þessu? Ég bara segi ekki annað“. Hólmsteinn íkorni bara snýr uppá skottið sem nú vísar beint upp í loftið.

„Það var voða frægur fugl fyrir vestan sem lýsti þessu kerfi í hasarblaði, mig minnir að hann hafi verið kallaður Frímann eða Frídmann sagði að þetta væri pottþétt fræ og korn kerfi“ sagði Hólmsteinn, bætir svo við, „Frímann sagði líka að maður ætti að græða á daginn og grilla á nóttunni.“

Nú fer kliður um tréð, mikill vængjaþytur og garg. Hæst lætur í rauðu og bleiku fuglunum þó eru bæði bláir og grænir fuglar sem garga með þeim rauðu og bleiku.

Fuglinn Haarde situr á samkomugrein trésins og stangar hrossakjöts-sinar úr goggnum með eikar goggstöngli. „Hvaða læti eru þetta eiginlega?“ spyr hann.“ Þetta er ekkert sem við þurfum að hafa áhyggjur af“  svarar Sóla bleika „þetta eru ekki allir fuglarnir í trénu, við þurfum ekki að hafa áhyggjur af þessu, bara örfáir villu rauðir fuglar að garga, það heyrist alltaf hæst í þeim.

Gargið heldur áfram dag eftir dag og forystu fuglar meðal gargfugla verða til sem stjórna garginu og skipuleggja það sem eftirá er kallað mótmæli. Kröfur gargfuglanna verða háværari með hverjum deginum og kröfurnar um að Haarde- Sól stjórnin segi af sér og efni til kosninga.

Dabbi stendur á sinni grein og horfir á lauflausar greinarnar fyrir neðan, hvað er að sjá allt farið til fjandans og ég nýbúinn að hella öllu vatninu mínu yfir greinarnar þrjár, þær eru bara að detta af, ég get ekkert gert meira. Hann sendir nú Hólmstein íkorna til Árvakurs með þau skilaboð, að svo kynni að fara á næstunni, að hann Dabbi sjálfur tæki við blaðinu. Hann myndi þá skipta um höfundarnafn og kalla sig Hádegismóra. „Segðu svo Árvakri að ég hafi margvarað við þessari óráðsíu fuglanna.“

„Biddu hann að setja það í blaðið undir dálknum sem kallaður er stakir steinar.“

 

 

 

Hér líkur vinjettuvæli númer tuttugu og eitt.

 

Ragnar Ben