Stjórnar- og nefndarfundur Korpúlfa, 2. maí 2018.
Stjórnar- og nefndarfundur Korpúlfa, 2. maí 2018.
Mættir:
Jóhann Helgason, Hjördís Björg Kristinsdóttir, Thor B. Eggertsson, Ráðhildur Sigurðardóttir, Baldur Magnússon, Katrín Þorsteinsdóttir, Páll Bjarnason, Eggert Sigfússon, Einar Magnús Sigurbjörnsson, S. Dinah Dunn og Egill Sigurðsson.
Fundarefni :
- Jóhann Helgason formaður setur fundinn
- Lesin fundargerð síðasta fundar ( 4.apríl 2018)
- Grafarvogsdagurinn 3.júní 2018
- Sölu og handverkssýning – Pönnuköku-kaffi – og fl.
- Sumarið í Borgum 2018
- Upplýsingar frá nefndum
- Önnur mál
- JH-formaður slítur fundi
- Jóhann Helgason formaður setur fundinn
Jóhann setti fundinn kl. 10:10.
- Lesin fundargerð síðasta fundar ( 4.apríl 2018).
Thor las upp fundargerð síðasta fundar.
- Grafarvogsdagurinn sunnudaginn 3. júní 2018.
- Fræðslunefnd sér um kaffið.
- Ráðhildur, Guðrún Birna og Helga (kona Jóhanns) munu sjá um pönnukökubakstur.
- Tvær pönnukökur saman, ein með rjóma og önnur með sykri.
- Hafa líka bara pönnukökur með sykri fyrir yngri kynslóðina og gefa þeim.
- Sölu og handverkssýning – Pönnuköku-kaffi – og fl.
- Samþykkt að hafa sölu og handverkssýninguna á Grafarvogsdeginum.
- Samþykkt að hafa handverksýninguna í listasmiðju og sölusýninguna í sal 1 og 2.
- Baldur benti á að fá fleka lánaða hjá kirkjunni, Jóhann bauðst til að fá son og tengdason til að flytja.
- Fræðslunefnd mun hafa samband við þá sem koma til með að sýna og selja.
- Sumarið í Borgum 2018.
- Styttri opnunartími 16. júlí til 14. ágúst.
- Félagsvistin verður næsta mánudag, 7. maí, en eftir það á miðvikudögum. Skemmtinefndin mun skipta með sér dögunum.
- Korpúlfar hafa miðvikudagana fyrir félagsvist, prjóna, veitingar og fl., dagana 18. og júlí, 1. og 8. ágúst. Skemmtinefndin ætlar að sjá um kaffi a.m.k. 3 daga og reyna að dreifa álaginu milli manna.
- Baldur lagði til að hafa tvær fótboltasýningar til viðbótar
- Upplýsingar frá nefndum.
Ferðanefnd.
- Góð þátttaka er í Vestmannaeyjaferðina, en það þarf að senda tölvupóst á þá sem hafa skráð sig og minna á greiðslu sem þarf að ganga frá fyrir 10. maí. Thor ætlar að hjálpa við að senda fjölpóstinn.
- Hugmynd um að fara í haustferð um árnessveitir.
- Golfmótið verður 30. maí. Tvískipt: Púttmót og höggleikur. Búið er að fá 9 holu völl og green fyrir púttið. Þátttökugjald er 1.000 kr.
Skemmtinefnd.
- Félagsvist á miðvikudögum.
- Keppni hjá +50, landsamband eldri borgara, á Sauðárkróki. Þátttökugjald er 4.900 en 6.900 eftir 15. júní. Ræða í stjórn um hóp hvort Korpúlfar muni styrkja þá sem taka þátt.
- Boccia verður á miðvikudagsmorgnum.
- Bridge verður næstu tvo föstudaga.
- Skákin fram í júní.
Menningarnefnd.
- Steinunn Kristjánsdóttir, fornleifafræðingur, ætlar að koma og segja frá leitinni að hinum klaustrunum í haust.
- Katrín sagði að óperukvöldin færi að ljúka en það yrði tekið aftur í haust. Settur verði upp þátttökulisti, miðinn kostar 3.100 kr.
- Önnur mál.
- Fótboltasýningar yrðu, 16. júní kl. 13, 22. og 26. júní kl. 18. Aðrar sýningar verða tilkynntar síðar.
Fundi slitið kl. 11:10 „Við erum öll vinir“.